Bloggfærslur mánaðarins, mars 2007
Þeir klikka ekki þessir
23.3.2007 | 22:13
Var að renna yfir mbl.is og rakst þá á þessa frétt Baggalútur sendir frá sér ættjarðarlag. Baggalútur er sko sveit að mínu skapi og hef ég verið aðdáandi þeirra til margra ára. Jafnvel ekki laust við að ég hafi öfundað þá örlítið fyrir að þora í upphafi að sleppa fíflaganginum lausum fyrir alþjóð. Og þegar ég tala um fíflagang þá er það í jákvæðri merkingu þess orðs. Ómar Ragnarsson var þessum hæfileika gæddur fram eftir aldri þ.e.a.s. að fíflast við þjóðina á jákvæðan hátt(slæmt þegar svona fíflungar fara út í pólitík). Laddi er náttúrulega bara snillingur að fíflast við þjóðina og svona mætti áfram telja.
Auðvitað er það ekki öllum gefið að geta skemmt heilli þjóð á sínum eigin forsemdum en það hefur þeim félögunum í Baggalút tekist vel til. Haldið áfram á sömu braut og þá er heimsfrægðin handan við hornið. (auðvitað verða þeir ekkert heimsfrægir, fannst bara flott að enda þetta svona)
Baggalútur sendir frá sér ættjarðarlag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Hvað er að gerast!
23.3.2007 | 16:10
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)